Föstudagur 27. mars - 20:00
Möntrukvöld í Blómaborg með Svenna & Jónasi
Síðasta föstudag hvers mánaðar.
Möntrukvöldin okkar hafa vaxið og vaxið með hverju kvöldinu frá upphafi. Við syngjum saman möntrur & trommum saman. Þeir sem eiga trommur koma með þær og það er fullt af trommum á staðnum. Við syngjum og tengjumst gegnum röddina. Við trommum saman og tengjumst gegnum rythmann. Við lyftum andanum í rýminu og undir lokin er eins og maður geti flogið í andanum. Allt er léttara. Lífið er fallegra. Von, trú og styrkur. Trú á mannkynið og lífið. Ef þú hefur ekki prófað þá ertu svo hjartanlega velkomin(n). Það skiptir engu hvort maður kann möntrur, vill syngja eða hefur prófað að tromma áður. Opinn hugur og hjarta er nóg. LOVE á alla KONUR & KARLA.

